Fyrsti hráefnafarmurinn til PCC

Í gær kom flutningaskip til Húsavíkur með fyrsta farm­­inn af hrá­efn­um fyr­ir ljós­boga­ofn kís­il­vers PCC Bakk­iSilicon ehf. á Bakka.

Fyrsti hráefnafarmurinn til PCC
Almennt - - Lestrar 481

Flutningaskipið leggst að Bökugarðinum.
Flutningaskipið leggst að Bökugarðinum.

Í gær kom flutningaskip til Húsavíkur með fyrsta farm­­inn af hrá­efn­um fyr­ir ljós­boga­ofn kís­il­vers PCC Bakk­iSilicon ehf. á Bakka.

Um er að ræða 3200 tonn af kvartsi og um 700 tonn af kolum og hófst uppskipun á Bökugarðinum í gær.

Vörubílar flytja hráefnið um Húsavíkurhöfðagöng að verksmiðjusvæðinu þar sem það sett í hrá­efna­geymslu verk­smiðjunn­ar.

Í Morgunblaðinu í dag segir Freyr Ingólfsson, vörustjóri hráefna hjá PCC Bakkasilikon, að kol­in komi frá Kól­umb­íu en skipið flutti þau hingað frá Rotter­dam. Kvartsið kem­ur úr nám­um sem PCC á í Póllandi.

PCC fyrsti farmurinn

Fyrsti bílinn undir kranann.

PCC fyrsti farmurinn

Ekið um göngin.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744