Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom í morgun

Fyrsta skemmtiferðaskipið sem hefur viðkomu á Húsavík í sumar kom til hafnar í morgun.

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom í morgun
Almennt - - Lestrar 365

Ocean Diamond kom í dag.
Ocean Diamond kom í dag.

Fyrsta skemmtiferðaskipið sem hefur viðkomu á Húsavík í sumar kom til hafnar í morgun.

Þetta var Ocean Diamond sem Iceland Pro-Crusiers gerir út til siglinga hringinn í kringum Ísland.

Skipið mun hafa viðdvöl á Húsavík ellefu sinnum til viðbótar í sumar.

Að sögn Þóris Gunnarssonar hafnarstjóra Norðurþings eru boðaðar 44 komur skemmtiferðaskipa í sumar og haust. Síðasta skipið kemur 25. september og er það einmitt Ocean Diamond sem lokar tímabilinu.

Þórir segir að þetta gæti breyst en svona lítur planið út í dag:

Skemmtiferðaskip sumarið 2018


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744