FSH stígur Græna skrefið

Framhaldsskólinn á Húsavík hefur ákveðið að stíga Græna skrefið en frá þessu er greint á heimasíðu skólans.

FSH stígur Græna skrefið
Almennt - - Lestrar 129

Framhaldsskólinn á Húsavík hefur ákveðið að stíga Græna skrefið en frá þessu er greint á heimasíðu skólans.

Umsjónarmenn verkefnisins innan skólans eru Elín Rúna Backman og Valdimar Stefánsson. Einkunnarorð skólans eiga mjög vel við í mótun sjálfbærs samfélags, frumkvæði - samvinna - hugrekki.

Á heimasíðu verkefnisins graenskref.is segir um verkefnið:

Verkefnið Græn skref er fyrir ríkisstofnanir sem vilja draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni og efla umhverfisvitund starfsmanna. Með þátttöku í Grænum skrefum gefst stofnunum tækifæri á að innleiða öflugt umhverfisstarf með kerfisbundnum hætti undir handleiðslu sérfræðinga Umhverfisstofnunar. Verkefnið er fjármagnað af Umhverfis- og auðlindaráðuneyti og er þátttaka því stofnunum að kostnaðarlausu.

Verkefnið er einfalt og aðgengilegt og ættu allar stofnanir að geta tekið þátt. Stofnanir sem skrá sig til leiks fylgja skýrum gátlistum sem skipt er upp í fimm skref. Hvert skref inniheldur á bilinu 20-40 aðgerðir sem stofnanir þurfa að innleiða í sinn rekstur. Aðgerðirnar miða einkum að venjulegri skrifstofustarfsemi. Veitt er viðurkenning fyrir hvert skref sem stofnanir ljúka við.

Aðgerðum Grænna skrefa er skipt í 6 flokka sem ná yfir helstu umhverfisþætti í venjulegum skrifstofurekstri. Skref 1-4 innihalda aðgerðir í öllum þessum flokkum en fimmta skrefið tekur á þeim aðgerðum sem þarf að innleiða til að byggja upp umhverfisstjórnunarkerfi hjá viðkomandi stofnun.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744