FSH hlaut gullverðlaun í Lífshlaupinu

Framhaldsskólinn á Húsavík hlaut gullverðlaun í Lífshlaupi ÍSÍ þriðja árið í röð.

FSH hlaut gullverðlaun í Lífshlaupinu
Almennt - - Lestrar 498

Framhaldsskólinn á Húsavík hlaut gullverðlaun í Lífshlaupi ÍSÍ þriðja árið í röð.

Skólinn hefur tekið þátt í Lífshlaupsverkefninu frá upphafi og ávallt staðið sig vel.

Viðar Sigurjónsson, starfsmaður ÍSÍ á Akureyri, heimsótti skólann í morgun og afhenti verðlaunagrip við stutta athöfn á sal.

FSH

Þessi mynd er fengin af  heimasíðu skólans en þar óskar Framhaldsskólinn á Húsavík nemendum sínum innilega til hamingju með árangurinn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744