Fréttir af starfi Soroptimistaklúbbi Húsavíkur og nágrennis 2019

Helgina 25.-26. október síðastliðna, stóðum við fyrir í þriðja skiptið sjálfstyrkingarnám-skeiði fyrir 12-13 ára stúlkur sem haldið var í Þingeyjarskóla

Helgina 25.-26. október síðastliðna, stóðum við fyrir í þriðja skiptið sjálfstyrkingarnám-skeiði fyrir 12-13 ára stúlkur sem haldið var  í Þingeyjarskóla (Hafralækjarskóla).

Öllum 12-13 ára stúlkum í Þingeyjarsýslum var boðið á námskeiðið þeim að kostnaðarlausu. 21 stúlka frá fjórum skólum þáðu boðið. Námskeiðið stóð yfir frá 18.00 á föstudagskvöldi til 18.00 á laugardagskvöldi. Þetta var hress og líflegur hópur sem náði vel saman. Gist var á staðnum. Námskeiðshaldarar voru þeir sömu og undanfarin tvö skipti eða þær stöllur Ingibjörg Þórðardóttir félagsráðgjafi og Sigríður Ásta Hauksdóttir náms-, starfs-, og fjölskylduráðgjafi. 

Það þarf dálítinn undirbúning að svona námskeiði og nutum við mikillar góðvildar í okkar nærsamfélagi. Eins og í fyrri skiptin fengum við afnot af Þingeyjarskóla okkur að kostnaðarlausu. Matföng fengum við frá fyrirtækjum á svæðinu. Þar skal nefna Norðlenska, Nettó, Heimabakarí og Hveravelli. Ýmsar fjáraflanir ásamt afrakstri Álfasölu okkar systra og framlög  Kvenfélaga í Þingeyjarsýslum,  sem voru að þessu sinni Kvenfélag Mývatnssveitar, Kvenfélagið Aldan Tjörnesi, Kvenfélagið í Kelduhverfi og Kvenfélag Reykdæla S-Þingeyjarsýslu dekkuðu námskeiðskostnað. Systur bökuðu gómsætat kökur og stóðu vaktina á meðan námskeiðið stóð.

Við viljum þakka öllum þeim aðilum sem styrktu okkur innilega fyrir hjálpina og góðvildina.

Oft höfum við fengið þessa spurningu: Hvað er að  vera Soroptimisti? Soroptimistar eru alþjóðleg samtök kvenna. Fram að þessu hefur reglan verið að bjóða konum þátttöku og valið er í félagsskapinn starfsgreinatengt.  Fyrsti soroptimistaklúbburinn var stofnaður í Oakland í Kaliforniu árið 1921 stuttu efir lok fyrri heimstyrjaldarinnar. Hægt og bítandi breiddist þessi félagsskapur út og í dag eru fjögur heimssamtök og félagar  um 80.000 í 127 löndum. Fyrsti klúbburinn á Íslandi var stofnaður 1959 í Reykjavík. Nú teljast íslenskir Soroptimistar um 600 í 18 klúbbum. Markmið Soroptimista er að vinna að bættri stöðu kvenn og stúlkna um allan heim.

                                Soroptimistaklúbbur Húsavíkur og nágrennis


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744