19. sep
Frábær árangur hjá Sidda á HMÍþróttir - - Lestrar 497
Sigurður Unnar Hauksson lauk keppni á Heimsmeistaramótinu í Granada á Spáni í dag.
Siddi skaut frábærlega á mótinu og var aðeins tveim dúfum fráþví að komast í úrslit.
Hann náði sínum besta árangri frá upphafi, 116 stig (23-24-24-23-22), og bætti eigið Íslandsmet í unglinga-flokki sem hann setti í fyrra um þrjú stig.
Siddi endaði í 12-17 sæti af 64 keppendum og er þetta mjög góður árangur hjá honum en Siddi er búinn er að leggja gríðalega hart að sér á undanförnum árum til að ná þessum árangri.
640.is óskar Sidda til hamingju með árangurinn og megum við Húsvíkingar vera stoltir af þessum unga íþróttamanni.