Frá Grunni í Gull, blakbúðir á HúsavíkÍþróttir - - Lestrar 507
Helgina 23.-25. mars 2018 mun Vladimir Vanja Grbic vera með blakbúðir á Húsavík.
Verkefnið er samstarfsverkefni blakdeildar Völsungs (Blakdeild Völsungs), BLÍ - Blaksamband Íslands og Special Olympics á Íslandi (Íþróttasamband fatlaðra) en Vladimir Grbic er „Global Ambassador volleyball" hjá Special Olympics.
Grbic var fyrirliði gullverðlaunahafa Júgóslava á Ólympíuleikunum i Sydney árið 2000 auk þess að hafa unnið til fjölda verðlauna á heims- og Evrópumótum í blaki.
Grbic var tekinn inn í Hall of Fame í blaki árið 2011.
Grbic mun vera með fræðilegan fyrirlestur sem og verklega þjálfun þar sem lögð verður áhersla á tæknileg atriði, þjálfunaraðferðir og andlegu hliðina og hvernig þessir þættir móta og hvetja unga iðkendur til afreka.
Föstudagskvöldið 23. mars verður fræðilegur fyrirlestur fyrir þjálfara, íþróttakennara og áhugasama. Fyrirlesturinn á ekki síður við þá sem koma að öðrum íþróttagreinum.
Blakbúðirnar hefjast svo á laugardaginn 24. mars. Þann dag verður áhersla á efni tengt fyrirlestrinum kvöldið áður og á erindi við flestar greinar íþrótta. Á sunnudeginum verður áhersla lögð á blakíþróttina.
Verkefnið er því fyrir blakiðkendur á aldrinum 11 - 18 ára á laugardegi og sunnudegi. Fyrir þjálfara, íþróttakennara og áhugasama frá föstudagskvöldi til sunnudags.
Sjá nánar á heimasíðu Völsungs.
Nánari upplýsingar og um verkefið er á Facebook síðu þess Frá Grunni í Gull.