Fjórar Völsungsstelpur á hæfileikamót KSÍ og N1

Völsungsstelpurnar Hildur Anna Brynjarsdóttir, Marta Sóley Sigmarsdóttir, Guðrún Þóra Geirsdóttir og Brynja Ósk Baldvinsdóttir taka þátt í hæfileikamóti

Fjórar Völsungsstelpur á hæfileikamót KSÍ og N1
Íþróttir - - Lestrar 496

Völsungsstelpurnar Hildur Anna Brynjarsdóttir, Marta Sóley Sigmarsdóttir, Guðrún Þóra Geirsdóttir og Brynja Ósk Baldvinsdóttir taka þátt í hæfileikamóti KSÍ og N1 sem fram fer í Akraneshöllinni á Akranesi dagana 14-15. okt.

Mótið fer fram undir stjórn Dean Martin, sem hefur ferðast um landið með Hæfileikamótun KSÍ og N1 og er þetta mót framhald af þeirri vinnu.

Um er að ræða stelpur sem eru í 4. flokki, 13 til 14 ára, og hafa þær mætt á æfingar og fengið annan fróðleik í gegnum Hæfileikamótun KSÍ og N1. (volsungur.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744