Fjölmenni á opnunarhátíð Vaðlaheiðaganga

Fjölmenni var á opnunarhátíð Vaðlaheiðarganga í gær og allir viðburður í göngunum afar vel sóttir.

Fjölmenni á opnunarhátíð Vaðlaheiðaganga
Almennt - - Lestrar 446

Friðrik og Ingibjörg klippa á borðann. Lj. Þ.B
Friðrik og Ingibjörg klippa á borðann. Lj. Þ.B

Fjölmenni var á opnunarhátíð Vaðlaheiðarganga í gær og allir viðburður í göngunum afar vel sóttir.

"Og ekki síður voru mjög margir viðstaddir sjálfa formlegu opnunina upp úr kl. 16 í dag.

Frábær stemning var í kaffisamsætinu í Valsárskóla og þar var þétt setinn bekkurinn í dag, sérstaklega milli kl. 17 og 18.

Það segir sitt um fjölda fólks sem lagði leið sína í göngin í dag að bæta þurfti við nokkrum rútuferðum frá Akureyri upp í göngin til þess að anna eftirspurn". Segir á fésbókarsíðu Vaðlaheiðaganga.

Vaðlaheiðagöngin

 Það voru tveir eldri borgarar, sem búsettir eru í sveitarfélögunum beggja vegna Vaðlaheiðar sem klipptu á borðann. Hólmfríður Ásgeirsdóttir, 92 ára og búsett á Svalbarðsströnd, og Friðrik Glúmsson í Vallarkoti, sem verður 100 ára í sumar og er elsti íbúi Þingeyjarsveitar. 

Vaðlaheiðagöngin

Fjölmenni í Vaðlaheiðagöngum.

Vaðlaheiðagöngin

Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri og Svavar Pálsson sýslumaður.

Ljósmyndirnar tók Þorgeir Baldursson og með því að smella á þær er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744