Fjöldahjálparstöđ opnuđ á Húsavík í morgun

Rauđi krossinn á Húsavík opnađi fjöldahjálparstöđ í Nausti, húsnćđi Rauđa krossins á Húsavík, fyrir 32 farţega hvalaskođunarbátsins Hauks sem strandađi

Fjöldahjálparstöđ opnuđ á Húsavík í morgun
Almennt - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 435 - Athugasemdir (0)

Frá strandstađ viđ Lundey.
Frá strandstađ viđ Lundey.

Rauði krossinn á Húsavík opnaði fjöldahjálparstöð í Nausti, húsnæði Rauða krossins á Húsavík, fyrir 32 farþega hvalaskoðunarbátsins Hauks sem strandaði við Lundey á Skjálfanda í morgun.

Fimm manns frá Rauða krossinum á Húsavík tóku á móti farþegunum með teppi eftir að þeir höfðu verið fluttir í land með slöngubátum og kvennadeild Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Húsavík bauð þeim upp á kaffi og kökur.

Læknar frá sjúkrahúsinu á Húsavík ávörpuðu farþegahópinn nú rétt fyrir hádegið, lýstu síðbúnum einkennum áfalla og hvöttu fólkið til að styðja við hvort annað og leita sér aðstoðar ef það finndi fyrir vanlíðan í kjölfar strandsins.

Eigendur Norðursiglingar sem rekur hvalaskoðunarbátinn Hauk ávarpaði einnig fólkið og var því boðið í heita súpu á veitingastað eftir að fundinum lauk nú um hádegið.

Að sögn Guðnýjar Björnsdóttur, verkefnisstjóra Rauða krossins á Norðurlandi, amaði ekkert að fólkinu, flestir farþeganna héldu ró sinni og engum virtist illa brugðið. Þegar klukkan var tíu mínútur yfir tólf sagði hún hvalaskoðunarbátinn Hauk vera að sigla fyrir eigin afli inn í Húsavíkurhöfn. (redcross.is)


640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744