14. maí
Fjármál við starfslok - Fræðslufundur á HúsavíkFréttatilkynning - - Lestrar 575
Íslandsbanki og stéttarfélagið Framsýn bjóða íbúum Þingeyjarsýslu á fræðslufund um það sem mikilvægast er að hafa í huga þegar styttist í starfslok.
Rætt verður um:
— Helstu skerðingar og greiðslur Tryggingastofnunar
— Hvenær og hvernig er best að taka út lífeyri og séreign
— Hvaða breytingar voru gerðar um áramótin
Fundurinn verður haldinn í húsnæði Framsýnar á Húsavík, miðvikudaginn 16. maí kl. 17. Íbúar á aldrinum 60–70 ára eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.