Fékk frumlega jólakveðju við Svalbarða

Stundum gerast óvænt og skemmtileg ævintýri á sjónum segir Eiríkur Sigurðsson skipstjóri frá Húsavík í Fésbókarfærslu í dag á öðrum degi jóla.

Fékk frumlega jólakveðju við Svalbarða
Almennt - - Lestrar 474

Kristján að senda jólakveðju út í Reval Viking.
Kristján að senda jólakveðju út í Reval Viking.

Stundum gerast óvænt og skemmtileg ævintýri á sjónum segir Eiríkur Sigurðsson skipstjóri frá Húsavík í Fésbókarfærslu í dag á öðrum degi jóla.

Eiríkur er skipstjóri á rækju-togaranum Reval Viking og var að veiðum í myrkri, stormi og hafís norðan við Svalbarða.

En gefum Eika orðið:

Eftir að hafa verið að veiðum norður í rassgati að undanförnu neyddumst við til að hörfa undan stormi og hafís vestur fyrir Svalbarða og inn á Isfjord á aðfangadag.

Við Isfjord stendur höfuðstaðurinn Longyearbyen þar sem Kristján vinur minn Breiðfjörð, Svavars heitins Cesars- og Guðnýjarson býr ásamt fjölskyldu sinni.

Í gær, jóladag, vorum við að veiðum skammt frá landi við Longyearbyen Þegar Kristján mætti í fjöruna og óskaði okkur gleðilegra jóla með ljósmerkjum á morsi. En fyrir þá sem ekki vita hvað "mors" er, þá er það stafróf sem notað er til fjarskipta með ljós- eða hjóðmerkjum á sjó.

Kristján var að sjálfsögðu alvopnaður enda staddur á kunnum bjarndýra slóðum og skammt frá þeim stað þar sem ísbjörn var manni að bana í haust.

Þetta er frumlegasta og skemmtilegasta jólakveðja sem ég hef fengið og munaði minnstu að við félagarnir, ég og Skröggur dyttum í jólagírinn.
 
Það má eiginlega segja að þetta hafi verið Covid-jólahittingur hjá okkur Kristjáni.

 
Ef vel er gáð sést skært ljós neðarlega til hægri á myndinni en þar er Kristján í fjörunni að morsa.
 
Ljósmynd - Aðsend
Kristján Breiðfjörð að morsa jólakveðjuna út í Reval Viking.
 
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744