Fannar Emil ráðinn yfirmatráður skólamötuneytis Húsavíkur

Fannar Emil Jónsson hefur verið ráðin yfirmatráður skólamötneytis Húsavíkur og mun hann hefja störf 1. ágúst.

Fannar Emil Jónsson. Lj. aðsend.
Fannar Emil Jónsson. Lj. aðsend.

Fannar Emil Jónsson hefur verið ráðin yfirmatráður skólamötneytis Húsavíkur og mun hann hefja störf 1. ágúst.

Í tilkynningu á heimasíðu Norðurþings segir að Fannar Emil hafi lokið sveinsprófi í matreiðslu árið 2016 og meistararéttindanámi í matreiðslu frá Hótel og veitingaskólanum í Kópavogi árið 2018.

Fannar Emil hefur starfað sem matreiðslumaður frá árinu 2016 á ION hótel á Selfossi, Canopy by Hilton Hótels í Reykjavík og Icelandair hótel Reykjavík Natúra í Reykjavík.

Frá því í júní 2018 hefur Fannar Emil starfað sem matreiðslumeistari hjá Bláa lóninu í Grindavík og sem yfirmatreiðslumeistari Icelandair Hótel Mývatn þar sem hann hefur séð um rekstur og stjórnun eldhúss ásamt innkaupum og almennu gæðaeftirliti.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744