Fálkaungi fangaður á Þórshöfn

Í fyrradag var fálkaunga komið til bjargar á Þórshöfn en hann var ófleygur og líklega grútarblautur.

Fálkaungi fangaður á Þórshöfn
Almennt - - Lestrar 204

Fálkaunginn sem komið var til bjargar.
Fálkaunginn sem komið var til bjargar.

Í fyrradag var fálkaunga komið til bjargar á Þórshöfn en hann var ófleygur og líklega grútar-blautur. 

Frá þessu segir á heimasíðu Langanesbyggðar og þar kemur m.a. fram að fuglasérfræðingar báðu um að fuglinn yrði fangður eftir að myndir af honum komu á fésbókarsíðu heimamanna.

Hann gisti í góðu yfirlæti hjá Guðjóni Gamsa yfir nótt og fór með flugi til Reykjavíkur í gær. Þar tók Sunna Björk Ragnarsdóttir við honum en hún er líffræðingur sem sérhæfir sig í fuglarannsóknum. Þar gistir hann yfir nótt en fer í dag í Húsdýragarðinn þar sem hann fær viðeigandi umönnun. 

Meðfylgjandi tók Sunna Björk en fleiri myndir af fálkanum á Þórshöfn er hægt að skoða á heimasíðu Langanesbyggðar.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744