ESA opnar formlega rannsókn á raforkusamningi vegna kísilvers PCC að Bakka

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) tilkynnti í dag að stofnunin hafi hafið formlega rannsókn á því hvort raforkusamningur á milli Landsvirkjunar og þýska

Tölvuunnin mynd af Bakka. Lj. Efla/PCC
Tölvuunnin mynd af Bakka. Lj. Efla/PCC

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) tilkynnti í dag að stofnunin hafi hafið formlega rannsókn á því hvort raforkusamningur á milli Landsvirkjunar og þýska fyrirtækisins PCC, um afhendingu á raforku til fyrirhugaðrar kísilmálmverksmiðju PCC að Bakka í Norðurþingi, feli í sér ólögmæta ríkisaðstoð.

Inn í þá rannsókn ESA kemur einnig samningur á milli Landsnets hf. og PCC um tengingu PCC við flutningskerfi raforku.

Í tilkynningu frá Fjármálaráðuneytinu segir að báðir samningarnir séu viðskiptasamningar sem gerðir eru beint á milli viðkomandi fyrirtækja og PCC og koma stjórnvöld ekki að gerð þeirra. Engu að síður eru samningarnir tilkynningarskyldir til ESA þar sem um fyrirtæki í opinberri eigu er að ræða. Ákvörðun ESA kemur stjórnvöldum í opna skjöldu þar sem ekki höfðu borist vísbendingar um að ástæða væri til að hefja slíka rannsókn.

Í ákvörðun ESA frá því í dag felst ekki afstaða stofnunarinnar til þess hvort um ólögmætan ríkisstyrk kunni að vera að ræða eða ekki, heldur eingöngu að stofnunin telur ástæður til að kanna það nánar með því að hefja formlega rannsókn á efni þessara tveggja samninga. ESA hefur fyrr á árinu samþykkt fjárfestingarsamning milli PCC og íslenska ríkisins, vegna verkefnisins að Bakka, sem og lög nr. 41/2013 um heimild ríkissjóðs til að fjármagna uppbyggingu innviða vegna atvinnustarfsemi á Bakka.
 
Ákvörðun ESA í dag hefur engin áhrif á þessar fyrri ákvarðanir ESA. Í framhaldi af ákvörðun ESA í dag gefst aðilum máls, og þriðju aðilum, færi á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri við ESA. 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744