Erla Ingileif sló einkunnamet Framhaldsskólans á Laugum

Erla Ingileif Harðardóttir frá Einarsstöðum í Reykjadal brautskráðist frá Framhaldsskólanum á Laugum með hæstu einkunn sem gefin hefur verið á

Erla Ingileif Harðardóttir. Lj. 641.is
Erla Ingileif Harðardóttir. Lj. 641.is

Erla Ingileif Harðardóttir frá Einarsstöðum í Reykjadal brautskráðist frá Framhaldsskólanum á Laugum með hæstu einkunn sem gefin hefur verið á stúdensprófi frá skólanum.

Brautskráning nýstúdenta fór fram sl. laugardag og Erla Ingileif dúxaði með einkunnina 9,51.

Erla Ingileif fékk afhent raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavik og menntaverðlaun Háskóla Íslands. Erla Ingileif fékk einnig viðurkenningu frá Menningarsjóði Þingeyskra kvenna fyrir hæstu meðaleinkunn á stúdentsprófi.

Þar fyrir utan fékk Erla Ingileif viðurkenningu fyrir góðan árangur í erlendum tungumálum og fyrir góðan árangur í stærfræði við Framhaldsskólann á Laugum.

Með raungreinaverðlunum HR fær Erla Ingileif niðufelld skólagjöld í eitt ár og með Menntaverðllaunum HÍ fær Erla Ingileif niðurfelld skólagjöld í eina önn, kjósi hún að sækja sér frekari menntun í þessum háskólum í framhaldinum.

Svo skemmtilega vill til að skólameistari Framhaldsskólans á Laugum Sigurbjörn Árni Arngrímsson, átti fram að deginum í dag einkunnametið sem hann setti við fyrstu brautskráningu nýstúdenta frá skólanum fyrir 25 árum síðan. Þá dúxaði Sigurbjörn Árni með einkunnina 9,50. (641.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744