Ella Fitzgerald heiðruð með tali og tónum í Reykjahlíðarkirkju

Ella Fitzgerald á sérstakan stað í hjörtum margra enda er hún ein ástsælasta söngkona sem uppi hefur verið.

Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir. Lj. Daníel St.
Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir. Lj. Daníel St.

Ella Fitzgerald á sérstakan stað í hjörtum margra enda er hún ein ástsælasta söngkona sem uppi hefur verið.

Þessi drottning djasstónlistarinnar hefði orðið 100 ára þann 25. apríl síðastliðinn og af því tilefni ætla tónlistarkonan Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir ásamt Helgu Kvam píanóleikara, Stefáni Ingólfssyni bassaleikara og Rodrigo Lopes slagverksleikara að heiðra minningu þessarar einstöku konu með tali og tónum í Reykjahlíðarkirkju á laugardagskvöldið næstkomandi. 

Dagskáin var áður flutt á Listasumri við mjög góðar undirtektir og var viðburðurinn sá fjölsóttasti sem Listasumar stóð fyrir í Hofi, enda elska allir Ellu. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744