Elísabet hljóp til sigurs á Stórmóti ÍR

Stórmót ÍR í frálsíþróttum fór fram í Reykjavík um nýliðna helgi

Elísabet hljóp til sigurs á Stórmóti ÍR
Íþróttir - - Lestrar 428

Stórmót ÍR í frálsíþróttum fór fram í Reykjavík um nýliðna helgi. Þetta hefur gjarnan verið það mót innanhúss sem Frjálsíþróttaráð HSÞ hefur stefnt á með sem mestri þátttöku. 

Þó svo að hópurinn í ár væri líklega eitthvað minni en áður náðist engu að síður flottur árangur og fjölmargar bætingar komu í hús eða alls 15 talsins, auk þeirra meta sem nokkrir settu í frumraun sinni í sínum greinum. Fjórum sinnum átti HSÞ fólk á palli. 

Elísabet Ingvarsdóttir átti flott hlaup í 600m hlaupi 11 ára stúlkna og uppskar gullverðlaun fyrir vikið, Hlynur Aðalsteinsson tók brons í bæði 1500m og 3000m hlaupum og Þórhallur Arnórsson nældi sér í brons með yfir 7m kasti í kúluvarpi. 

Á Stórmóti ÍR hefur lengi verið sú skemmtilega hefð að veita einnig viðurkenningu til þeirra sem eiga mestu bætinguna í hverri grein í hverjum flokki – og þá viðurkenningu fengu HSÞ-krakkarnir a.m.k. 4 sinnum. Frábært mót með flottum krökkum. 

Öll úrslit mótsins má nálgast á mótaforriti FRÍ thor.fri.is

Stórmót ÍR

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

Ljósmynd hsth.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744