09. júl
Eldur í kísilveri PCC á BakkaAlmennt - - Lestrar 403
Allt tiltækt slökkviliðs Norðurþings var kallað út á áttunda tímanum þegar eldur kom upp í kísilveri PCC Bakka við Húsavík
Á mbl.is segir að eldur hafi komið upp á milli hæða í ofnhúsi og gekk greiðlega að ráða niðurlögum hans. „Við erum alveg að klára vinnuna hér,“ sagði Grímur Kárason slökkviliðsstjórui á Húsavík í samtali við mbl.is á ellefta tímanum í kvöld og bætti við að slökkviliðið væri í glæðuleit og reykræstingu. Engan sakaði í eldinum að sögn Gríms.