Efling tók þátt í bikarkeppni BLÍ í fyrsta skipti

Karlalið Eflingar tók í fyrsta skipti þátt í bikarkeppni BLÍ um helgina þegar liðið heimsótti KA á Akureyri.

Efling tók þátt í bikarkeppni BLÍ í fyrsta skipti
Íþróttir - - Lestrar 404

Karlalið Eflingar í blaki.
Karlalið Eflingar í blaki.

Karlalið Eflingar tók í fyrsta skipti þátt í bikarkeppni BLÍ um helgina þegar liðið heimsótti KA á Akureyri.

Úr varð skemmtilegur leikur þar sem jafnræði var með liðunum í byrjun leiks en þegar leið á leikinn var reynslumikið lið KA fullstór biti fyrir Eflingarmenn og landaði nokkuð öruggum 3 – 0 sigri. 

Á vef Eflingar segir að leikgleðin hjá þeirra mönnum hafi þó verið í fyrirrúmi allan tímann þar sem allir leikmenn liðsins tóku þátt og stóðu sig með prýði. 

Í fréttinni koma nokkrir áhugaverðir punktar fram:

Skemmtilegt er að geta þess að bæði í þessum leik sem og í Íslandsmótinu sem liðið tók þátt í í lok október spilaði Aðalsteinn Már (frá Hjalla) með sonum sínum tveim, þeim Ísak og Stefáni Boga. Sannarlega mikið blakfjölskylda þar á ferð.

Arnar Ingi Sæþórsson spilaði þarna sinn fyrsta blakleik en hann byrjaði að æfa blak í Október. Hann var í byrjunarliðinu.

Einn bikarmeistari var í liðinu í gær. Kristinn Björn Haraldsson átti titil að verja en hann hefur orðið bikarmeistari með KA síðustu 2 árin.

Karlalið Eflingar í blaki

Efri röð frá vinstri: Arnar Ingi, Jóhann Ágúst, Jónas Halldór, Árni Pétur, Ísak Már og Stefán Bogi. Neðri röð frá vinstri: Óliver, Aðalsteinn Már, Kristinn Björn, Hnikarr og Ómar.

Meðfylgjandi mynd af liðinu er fengin af vef Eflingar.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744