Dekkj­un­um stolið á slysstað

Mesta mildi er að ekki fór verr þegar ökumaður missti stjórn á bif­reið sinni á Mel­rakka­sléttu í gær.

Dekkj­un­um stolið á slysstað
Almennt - - Lestrar 516

Bifreiðin var dekkjalaus þegar hún var sótt í dag.
Bifreiðin var dekkjalaus þegar hún var sótt í dag.

Mesta mildi er að ekki fór verr þegar ökumaður missti stjórn á bif­reið sinni á Mel­rakka­sléttu í gær. 

Bif­reiðin lenti á grjót­hrúgu og gereyðilagðist. Var hún geymd á slysstað yfir nóttu en þegar hún var sótt í dag voru dekk­in horf­in ásamt felg­un­um, þar sem ein­hverj­ir óprúttn­ir ein­stak­ling­ar höfðu stolið þeim. 

Lög­regl­an á Húsa­vík biðlar til fólks að láta af slíkri iðju og valda þeim sem lent hafa í slysi enn meira tjóni. (mbl.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744