Deiliskipulag vegna nýs hjúkrunarheimils á Húsavík

Fyrir fundi Skipulags- og framkvæmdaráði Norðurþings í vikunni lá erindi frá Dvalarheimili aldraðra - Hvammi á Húsavík.

Fyrir fundi Skipulags- og framkvæmdaráði Norðurþings í vikunni lá erindi frá Dvalarheimili aldraðra - Hvammi á Húsavík.

Þar var óskað eftir því að sveitarfélagið hefji undirbúning af gerð deiliskipulags fyrir reitinn sem nú hýsir núverandi byggingar heimilisins og aðra tengda starfsemi.

Sérstaklega er þess óskað að deiliskipulag skilgreini byggingarheimild fyrir 60 rýma hjúkrunarheimili, allt að 3.900 m² að flatarmáli, norðan Brekkuhvamms við Skálabrekku.
 
Í fundargerð segir að Skipulags- og framkvæmdaráð fagni fyrirhugaðri uppbyggingu á hjúkrunarheimili og mikilvægt sé að hefja þessa vinnu sem fyrst.
 
Ráðið felur skipulags- og byggingarfulltrúa að láta vinna skipulagslýsingu fyrir tilgreint deiliskipulag.
 
Húsavík 2013
 
Júlí 2013.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744