Degi barnabókarinnar fagnađ

Á fimmtudag verđur smásaga eftir Hildi Knútsdóttur frumflutt í öllum grunnskólum landsins kl. 9.10.

Degi barnabókarinnar fagnađ
Fréttatilkynning - - Lestrar 569

Hildur Knútsdóttir.Ljósm. Sigtryggur Ari Jóhannss.
Hildur Knútsdóttir.Ljósm. Sigtryggur Ari Jóhannss.

Á fimmtudag verđur smásaga eftir Hildi Knútsdóttur frumflutt í öllum grunnskólum landsins kl. 9.10.

Sagan verđur samtímis flutt á Rás 1 svo ađ öll ţjóđin getur lagt viđ hlustir.

Hildur skrifađi söguna Stjarnan í Óríon fyrir börn á aldrinum 6-16 ára í tilefni dags barnabókarinnar ađ beiđni IBBY á Íslandi, en ţetta er í sjöunda sinn sem félagiđ fagnar deginum međ ţessum hćtti. Hildur hlaut fyrr í vor Íslensku bókmenntaverđlaunin í flokki barna- og ungmennabóka fyrir nýjustu bók sína, Vetrarhörkur, en bćkur hennar hafa fengiđ fjölda verđlauna og viđurkenninga. Stjarnan í Óríon fjallar um stúlkuna Ţebu sem uppgötvar glćnýja stjörnu á himinhvolfinu. Hildur segir um söguna:

„Alheimurinn er svo fáránlega stór og viđ vitum í rauninni svo rosalega lítiđ um hann. Viđ gleymum ţví stundum ţví viđ erum svo upptekin af okkar daglega amstri. Ţessvegna langađi mig til ađ skrifa sögu um dularfulla stjörnu sem birtist skyndilega á himnum og möguleikann á ţví ađ viđ séum ekki ein í heiminum.“

Sagan verđur lesin fyrir grunnskólabörn á öllum aldri og er verkefniđ hluti af ţeirri hugsjón félagsins ađ lestraráhugi og lestrarfćrni fáist fyrst og fremst međ ţví ađ fćra ungum lesendum vandađar og spennandi sögur. Dagur barnabókarinnar er sunnudaginn, 2. apríl, sem er fćđingardagur H.C. Andersen, en sagan er flutt 30. mars svo allir grunnskólanemar landsins geti hlustađ á hana saman.

Í fréttatilkynningu segir ađ mjög góđ ţátttaka hafi veriđ í sögustundinni undanfarin ár og skemmtileg stemning myndast um allt land. 


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744