Dagur jákvæðs aga á baráttudegi gegn einelti

Alþjóðlegur baráttudagur gegn einelti í dag 8. nóvember.

Dagur jákvæðs aga á baráttudegi gegn einelti
Almennt - - Lestrar 277

Alþjóðlegur baráttudagur gegn einelti í dag 8. nóvember.

Á vef Menntamálastofnunar segir:

Menntamálastofnun minnir á DAG GEGN EINELTI 8. nóvember nk., sem helgaður er baráttunni gegn einelti í skólum.

Börnin okkar eiga rétt á því að líða vel í skóla. Jákvæður skólabragur skiptir sköpum fyrir líðan og starfsgleði nemenda og starfsfólks og getur haft sömu áhrif og besta forvarnarstarf. Til þess að svo megi vera þurfum við öll að leggja okkur fram og leggja áherslu á virðingu, samkennd, jákvæð samskipti og skilning.

Hér á Húsavík (og víðar) halda leikskólinn Grænuvellir og Borgarhólsskóli dag jákvæðs aga þennan sama dag.

Á Grænuvöllum var í tilefni dagsins myndaður vinahringur úti í garði, börnin föndruðu og gáfu bæjarbúum hjörtu, auk þess sem elstu nemendur leikskólans gerðu myndband.

Í myndbandinu segja þau frá lausnahjólinu sem við notum til að finna lausnir á málum sem koma upp og þarfnast lausna. Þannig læra þau að leysa úr vandamálum sjálf á lýðræðislegan hátt auk þess sem þau læra að það er hægt að finna lausnir og það er mikilvægt að leysa mál. Lausnahjólið er mikilvægt verkfæri í skólastarfinu okkar og eru börnin á öllum aldri dugleg að nýta sér það.

Hér er hægt að skoða myndbandið

 



  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744