Dagbjört, Hulda, Særún og Árdís skrifa undir við Völsung

Nú í ársbyrjun skrifuðu fjórir leikmenn Völsungs í meistaraflokki kvenna undir tveggja ára samninga við félagið.

Særún, Árdís, Hulda og Dagbjört.
Særún, Árdís, Hulda og Dagbjört.

Nú í ársbyrjun skrifuðu fjórir leikmenn Völsungs í meistaraflokki kvenna undir tveggja ára samninga við félagið.

Frá þessu segir á heimasíðu Völsungs en þetta eru Dagbjört Ingvarsdóttir, Hulda Ösp Ágústsdóttir, Særún Anna Brynjarsdóttir og Árdís Rún Þráinsdóttir.  Þær eru allar uppaldir leikmenn hjá félaginu og með mikla reynslu í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu.

Dagbjört Ingvarsdóttir er 22 ára og hefur spilað 94 leiki með meistaraflokki og skorað 13 mörk. Hún er varnar og miðjumaður og var valin besti leikmaður síðasta sumars á lokahófi meistaraflokkanna.

Hulda Ösp Ágústsdóttir er 19 ára og hefur spilað 46 leiki og skorað 16 mörk.  Hulda er örfættur kantmaður og var valin efnilegasti leikmaður síðasta sumars á lokahófi meistaraflokkanna. Hún lék bæði með 2. flokki og meistaraflokki síðasta sumar.

Særún Anna Brynjarsdóttir 19 ára hefur spilað 46 leiki með meistaraflokki.  Særún er varnarmaður og hefur oft verið í bakvarðarstöðu. Særún spilaði einnig bæði með 2. flokki og meistaraflokki á síðasta sumri.

Árdís Rún Þráinsdóttir er 17 ára og hefur spilað 20 leiki með meistaraflokki.  Árdís átti gott sumar í fyrra og stóð í vörninni bæði hjá meistaraflokk og 2. flokki.  Hún var valin besti leikmaður 2. flokks síðasta sumars.

Þjálfari liðsins er John Andrews en hann mun stýra liðinu í sumar líkt og á síðasta tímabili. Hann er ánægður með hversu efnilegar knattspyrnustúlkur við eigum hér á Húsavík og er það mikill fengur fyrir félagið að ná samningum við þær og halda þeim hér heima.  Hann hlakkar til komandi tímabils og segir að stefnan sé að koma liðinu upp um deild. Nú er verið að vinna í leikmannamálum og búast megi við fleiri undirskriftum á næstu dögum.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744