Curio styður við unga knattspyrnuiðkendur

Á dögunum var skrifað undir samstarfssamning milli Barna- og unglingaráðs Völsungs í knattspyrnu og Curio ehf. til þriggja ára.

Curio styður við unga knattspyrnuiðkendur
Almennt - - Lestrar 402

Frá Curiomótinu 2017.
Frá Curiomótinu 2017.

Á dögunum var skrifað undir samstarfssamning milli Barna- og unglingaráðs Völsungs í knattspyrnu og Curio ehf. til þriggja ára.

Samningurinn felur m.a. í sér að árlegt knattspyrnumót Völsungs fyrir 6., 7. og 8. flokk mun bera heitið Curiomótið.

Í tilkynningu þakkar Barna- og unglingaráð Völsungs Elliða Hreinssyni eiganda Curio, sem framleiðir fiskvinnsluvélar og er með starfsstöð á Húsavík, fyrir stuðninginn.

Völsungur og Curio

Jón Höskuldsson og Elliði Hreinsson undirrituðu samninginn að viðstöddum ungum Völsungum. Fv. Höskuldur Jónsson, Andri Valur Bergmann og Davíð Leó Lund.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744