Býr Íslendingur hér - sýnt á Akureyri næsta haust

Leikfélag Akureyrar, Menningarfélagið Hof og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sameinuðust undir merkjum MAk, Menningarfélags Akureyrar, um síðustu áramót.

Býr Íslendingur hér - sýnt á Akureyri næsta haust
Fréttatilkynning - - Lestrar 362

Íris, Benedikt Karl og Arnar við vinnu sína.
Íris, Benedikt Karl og Arnar við vinnu sína.

Leikfélag Akureyrar, Menningarfélagið Hof og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sameinuðust undir merkjum MAk, Menningarfélags Akureyrar, um síðustu áramót.

Leikritið Býr Íslendingur hér sem frumsýnt verður í september i Samkomuhúsinu á Akureyri verður ein af þeim leiksýningum sem hið nýja félag mun framleiða næsta vetur. Fjölbreytt dagskrá MAk verður kynnt 20. ágúst en ný heimasíða - www.mak.is mun opna um miðjan júní. 

Leikgerð Þórarins Eyfjörð á bók Garðars Sverrissonar Býr Íslendingur hér verður fyrsta verkefnið sem leiklistarsvið MAk frumsýnir næsta vetur. Bók Garðars greinir frá lífsbaráttu Leifs Muller í fangabúðum nasista. Nú eru liðin 70 ár frá því að útrýmingarbúðir nasista voru frelsaðar af bandamönnum í lok seinni heimstyrjaldarinnar árið 1945.

Leifur ólst upp í Reykjavík en fór sem ungur maður til Noregs í nám. Hann er síðan staddur í Noregi þegar nasistar hernema landið. Hann gerir áætlun um að komast heim til Íslands en er svikinn í hendur Gestapó af öðrum Íslendingi, færður í einangrun og þaðan sendur til Grini fangabúðanna í nágrenni Oslóar . Þaðan flytja Þjóðverjar hann til Sachsenhausen sem eru alræmdar vinnu- og útrýmingarbúðir Nasista. Frásögn Leifs er einstök í bókinni, hugrökk og hispurslaus og vakti mikla athygli þegar hún kom út á sínum tíma.

Hin þjóðkunni leikari Arnar Jónsson sem stjé sín fyrstu sviðsspor í Samkomuhúsinu á Akureyri mun leika í sviðssetningunni ásamt Benedikt Karli Gröndal. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson og tónlist er í höndum Davíðs Þórs Jónssonar. Um leikmynd og búninga sér Íris Eggertsdóttir. 

Frásögnin í Býr Íslendingur hér brýnir fyrir okkur ábyrgðina sem fylgir því að vera manneskja og segir okkur sögu sem aldrei má falla í þagnargildi.

Sýningin verður frumsýnd í Samkomuhúsinu þann 18. september.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Írisi Eggertsdóttur, Benedikt Karl Gröndal og Arnar Jónsson við vinnu sína. Myndin er tekin í Borgarasal Samkomuhússins.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744