Botnvatnshlaup á Mærudaginn

Hlaupahópurinn Skokki á Húsavík býður til Botnsvatnshlaups Landsbankans sem haldið verður á Mærudeginum á Húsavík laugardaginn 25. júlí kl. 10:30.

Botnvatnshlaup á Mærudaginn
Fréttatilkynning - - Lestrar 462

Frá Botnvatshlaupinu 2014. Lj. Fríður Helga.
Frá Botnvatshlaupinu 2014. Lj. Fríður Helga.

Hlaupahópurinn Skokki á Húsavík býður til Botnsvatnshlaups Landsbankans sem haldið verður á Mærudeginum á Húsavík laugardaginn 25. júlí kl. 10:30.

Staðsetning og tími
Hlaupið er haldið laugardaginn 25. júlí og hefst kl. 10:30 við norðvestanvert Botnsvatn. Botnsvatn er einn af útivistarstöðum Húsvíkinga og þar er að finna fallega fjölbreytta náttúru og dýralíf og þægilegan göngustíg umhverfis vatnið.

Vegalengdir
Boðið er upp á 3,3 km og 8,3 km hlaup eða göngu.

Leiðin
Þátttakendur ráða hvort þeir ganga, skokka eða hlaupa þær tvær vegalengdir sem eru í boði:

  • 3,3 km. vegalengd. Hefst við norðanvert Botnsvatn og farið er meðfram vatninu að norðanverðu og síðan niður Búðarárstíginn meðfram Búðará, fram hjá vatnsveitu og niður í Skrúðgarðinn á Húsavík, þar sem endamarkið er við Kvíabekk. Nokkur lækkun er frá Botnsvatni og niður í Skrúðgarð. Þægilegur stígur við allra hæfi í fallegu umhverfi.
  • 8,3 km. vegalengd. Hefst við norðanvert Botnsvatn, farinn er rúmlega einn hringur rangsælis um vatnið, síðan niður Búðarárstíginn meðfram Búðará og niður í Skrúðgarðinn þar sem endamarkið er við Kvíabekk. Drykkjarstöð er eftir 5,6 km. leið.

Verðlaun
Fyrsta konan og fyrsti karlinn í lengra (8,3 km.) hlaupinu fá verðlaun og auk þess munu nokkrir heppnir þátttakendur fá útdráttarverðlaun.

Nánari upplýsingar og skráning
Nánari upplýsingar um Botnsvatnshlaup Landsbankans veita Guðmundur 861-0182, Ágúst 864-6601, Jón Friðrik 864-1295 og Heiðar 866-7100. Mikilvægt er að skrá sig í netfangið skokkihlaup@gmail.com eða síma 864-1295 (fullt nafn, fæðingarár og vegalengd) fyrir kl. 20:00 föstudaginn 24.07.2015. Skráning einnig upp við Botnsvatn á laugardeginum frá kl. 09:30. Þeir sem skráð sig við Botnsvatn á hlaupadag greiða kr. 500 í þátttökugjald, fyrir hina sem skrá sig á netfangið fyrir kl. 20:00 á föstudag kostar ekkert.  

Annað
Við endamarkið í Skrúðgarðinum á Húsavík verður boðið upp á drykki. Botnsvatn er um 2,5 km. frá miðbæ Húsavíkur, þangað er góður akvegur (upp frá Ásgarðsvegi).  Þátttakendum er ráðlagt að leggja bílum upp við bílastæðið við norðurenda vatnsins, þar hefst hlaupið í ár. Skrúðgarðurinn er við miðbæ Húsvíkur.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744