Borgarhólsskóli bar sigur úr býtum í Stóru upplestrarkeppninni

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram síðastliðinn föstudag í Safnahúsinu á Húsavík.

Nemendur úr Borgarhólsskóla sem lásu upp.
Nemendur úr Borgarhólsskóla sem lásu upp.

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram síðastliðinn föstudag í Safnahúsinu á Húsavík.

Tíu ungmenni úr 7. bekk úr Borgarhólsskóla, Reykjahlíðarskóla og Þingeyjarskóla komu fram og fluttu mál sitt fyrir gesti.

Í fyrstu umferð voru lesnar svipmyndir úr skáldsögunni Strokubörnin á Skuggaskeri eftir Sigrúnu Eldjárn. Í annarri umferð voru lesin ljóð eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson. En í þriðju og síðustu umferð fengu lesarar val um hvaða ljóð þeir vildu flytja.

Nemendur Tónlistarskóla Húsavíkur, Reykjahlíðarskóla Þingeyjarskóla voru með tónlistaratriði.

Í fyrsta sæti var Andri Már Sigursveinsson úr Borgarhólsskóla, í öðru sæti var Styrmir Snorrason úr Þingeyjarskóla og þriðja sæti skipaði Karen Vala Daníelsdóttir úr Borgarhólsskóla.

Lesarar úr Borgarhólsskóla. Auk Andra og Karenar voru þær Sigrún Egla Unnarsdóttir, Sigrún Marta Jónsdóttir og Sjöfn Hulda Jónsdóttir fulltrúar Borgarhólsskóla og voru þau öll skólanum til mikils sóma að því er segir á heimasíðu skólans.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744