Bólusetningar á HSN fyrir íbúa 80 ára og eldri í vikunni

Þriðjudaginn 2. mars, munu 720 skammtar af Pfizer bóluefninu berast á Norðurlandið.

Þriðjudaginn 2. mars, munu 720 skammtar af Pfizer bóluefninu berast á Norðurlandið. Bóluefnið verður nýtt til að bólusetja íbúa 80 ára og eldri og er búist við að fara langleiðina með að klára þann hóp með þessum skömmtum.

Á Akureyri verður fólk boðað með sms skilaboðum þar sem tími og staðsetning kemur fram en hringt verður í þá sem ekki hafa farsíma. Á Akureyri er gert ráð fyrir að bólusetja eftir hádegi þriðjudaginn 2. mars á slökkvistöð Akureyrar.

Á öðrum heilsugæslum á Norðurlandi fær fólk boð í bólusetningu annaðhvort með sms skilaboðum eða með símtali þar sem tími og staðsetning kemur fram. Bólusetningar munu fara fram dagana 2. - 5. mars. (hsn.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744