Bókargjöf Kvenfélags Keldhverfinga til Öxarfjarðarskóla

Öxarfjarðarskóla hefur borist kærkomin gjöf frá Kvenfélagi Keldhverfinga, nýjar vel valdar bækur á öll stig.

Séð yfir Kelduhverfi og Öxarfjörð.
Séð yfir Kelduhverfi og Öxarfjörð.

Öxarfjarðarskóla hefur borist kærkomin gjöf frá Kvenfélagi Keldhverfinga, nýjar vel valdar bækur á öll stig.

Á heimasíðu skólans segir að það sé mikilvægt að endurnýja inn í bókakostinn en ekki alltaf mikið svigrúm fyrir skólann að gera það og fær Kvenfélag Keldhverfinga kærar þakkir fyrir.

"Kvenfélögin okkar þrjú hér í Öxarfirðihafa lagt sig fram um að bæta búnað skólans og er það þeim að þakka að nú er kominn skjávarpi í stofur allra stiga grunnskóladeildar. Sá síðasti var nýlega settur upp og mikil ánægja með það. Þetta auðveldar okkur að nýta stafrænt námsefni fyrir nemendur". Segir jafnframt í fréttinni.

 

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744