Þrír nýir leikmenn til liðs við Völsung í Mizunodeild kvenna

Um helgina hefst keppni í úrvalsdeild kvenna í blaki og fara Völsungsstúlkur suður yfir heiðar þar sem þær mæta liði Aftureldingar í Mosfellsbæ í tvígang.

Ashley Boursiquot og Rut Gomez.
Ashley Boursiquot og Rut Gomez.

Um helgina hefst keppni í úrvalsdeild kvenna í blaki og fara Völsungsstúlkur suður yfir heiðar þar sem þær mæta liði Aftureldingar í Mosfellsbæ í tvígang.

Fyrri leikurinn er á laugardag kl. 13:00 og sá síðari á sunnudag kl. 13:00 
 
Í tilkynningu segir að lið Völsungs sé mikið breytt frá fyrra ári, eldri reynsluboltar eru smá saman að tínast úr lestinni og 12 manna leikmannahópur meistaraflokks er að mestu skipaður bráðefnilegum ungum stelpum úr 2 og 3 flokki ásamt nokkrum erlendum leikmönnum .
 
Rut Gomes frá Guatemala og  Ashley Boursiqout frá Bandaríkjunum gerðu samning við Blakdeildina um að  æfa og leika með liðinu fram að áramótum ásamt því að koma að þjálfun yngri blakara. Þær eru báðar mjög sterkar og öflugar blakkonur og munu styrkja Völsungssliðið mikið og eru að gera góða hluti með krakkana enda miklar fyrirmyndir á velli og hressar vel.
 
Einnig gekk til liðs við blakliðið hin Pólska Alexandra Drozolek sem starfar hjá PCC á Bakka. Hún mætti á æfingu og var umsvifalaust tekin um borð enda hörkublakari með óvenjulegan slagkraft sem mun vonandi skila sér í hörkuskellum í leikjunum framundan. Þjálfari liðsins er sem fyrr Sladjana Simjanic.

Stefnan er sett á að halda áfram uppbyggingu á blakliði sem geti keppt um titla á næstu árum. Upp eru að koma stórefnilegar stelpur úr yngri flokka starfinu sem munu smám saman taka við keflinu og bera uppi lið framtíðarinnar. Næstu 2-3 árin er samt alveg ljóst að utanaðkomandi liðsstyrkur er nauðsynlegur fyrir Völsungssliðið svo hægt sé að halda uppi samkeppnishæfu liði meðal þeirra bestu.

Samhentur hópur áhugafólks ber upp starfið á bak við tjöldin og treystum við á að Húsvíkingar og Þingeyingar styðji vel við liðið í vetur og mæti í höllina á heimaleiki.
 
Blakdeild Völsungs heldur úti facebook síðu þar sem helstu fréttir koma fram ásamt upplýsingum  um beinar útsendingar frá útileikjum.  Áfram Völsungur !!
 

Völsungur blak

Ashley Boursiquot og Rut Gomez.

Völsungur blak 2018

Alexandra Drozolek.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744