Betra seint en aldrei

Á heimasíðu Skútustaðhrepps segir að nýjasti ráðningarsamningur sveitarfélagsins sé við þann starfsmann sem jafnframt hafi lengstan starfsaldur hjá

Betra seint en aldrei
Almennt - - Lestrar 681

Ingi Þór Yngvason. Lj. skutustadahreppur.is
Ingi Þór Yngvason. Lj. skutustadahreppur.is

Á heimasíðu Skútustaðhrepps segir að nýjasti ráðningar-samningur sveitarfélagsins sé við þann starfsmann sem jafnframt hafi lengstan starfsaldur hjá sveitarfélaginu.

Þau tímamót urðu nefnilega í síðustu viku að sveitarfélagið skrifaði loks undir fastráðninga-samning við Inga Þór Yngvason minka- og refaskyttu og meindýraeyðir.

Hann hefur starfað sem slíkur á vegum Skútustaðahrepps síðan 1. maí 1976 og er án nokkurs vafa sá fremsti í sínum flokki á landsvísu og þótt víðar væri leitað.

Ingi Þór hefur unnið frábært starf í gegnum tíðina í Mývatnssveit og víðar sem seint verður full þakkað. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744