Atvinnurekendur þrýsta á viðræður við Framsýn, stéttarfélag

Til stóð að fulltrúar Framsýnar hæfu viðræður við þau 12 fyrirtæki á félagssvæðinu sem þegar hafa óskað eftir viðræðum við félagið um nýjan kjarasamning

Til stóð að fulltrúar Framsýnar hæfu viðræður við þau 12 fyrirtæki á félagssvæðinu sem þegar hafa óskað eftir viðræðum við félagið um nýjan kjarasamning eftir helgina.

Í tilkynningu frá félaginu segir að vegna mikils þrýstings frá fyrirtækjunum hefur verið ákveðið að hefja viðræðurnar á laugardaginn.

Fyrirtækin sem eiga í hlut leggja mikið upp úr því að klára viðræðurnar fyrir 30. apríl þegar verkfallsaðgerðir hefjast á vegum aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins, verði ekki búið að semja fyrir þann tíma.

Þá má geta þess að Framsýn hefur boðað til félagsfundar á sunnudaginn þar sem óskað verður eftir umboði fundarins til að ganga frá kjarasamningum við þau fyrirtæki sem þess óska á félagssvæðinu.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744