Atvinnuleysi í sögulegu hámarki í aprílAlmennt - - Lestrar 215
Á heimasíðu Framsýnar segir að óhætt sé að tala um að atvinnu-leysi sé í sögulegu hámarki um þessar mundir.
Í lok apríl voru alls 49.353 einstakl-ingar á atvinnuleysisbótum á Íslandi, þar af 28.023 karlar og 21.330 konur.
Rétt er að taka fram að hér er verið að tala um einstaklinga sem eru atvinnulausir og þá sem eru á hlutabótum hjá Vinnumálastofnun á móti vinnu hjá viðkomandi atvinnurekendum. Samkvæmt þessum tölum er atvinnuleysið töluvert meira hjá körlum en konum.
Sé horft til félagssvæðis Framsýnar og Verkalýðsfélags Þórshafnar voru 692 á atvinnuleysisbótum í lok apríl sem skiptist þannig.
Norðurþing 397
Skútustaðahreppur 141
Þingeyjarsveit 96
Tjörneshreppur 7
Langanesbyggð 45
Svalbarðshreppur 6