Áslaug Munda til Finnlands

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir leikmaður Völsungs hefur verið valin í landsliðshóp U-16 kvenna sem tekur þátt í Norðurlandamóti í Oulu í Finnlandi dagana

Áslaug Munda til Finnlands
Íþróttir - - Lestrar 457

Áslaug Munda í leik með Völsungi.
Áslaug Munda í leik með Völsungi.

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir leikmaður Völsungs hefur verið valin í landsliðshóp U-16 kvenna sem tekur þátt í Norðurlandamóti í Oulu í Finnlandi dagana 29. júní - 7. júlí.

Á heimasíðu Völsungs segir að Áslaug Munda sé vel að þessu komin. Hún sé búin að æfa vel og leggja sig alla fram í þeim verkefnum sem hún hafi fengið hjá félaginu og verið öðrum til fyrirmyndar.

Þess má til gamans geta að Hildur Þóra Hákonardóttir sem einnig er í hópnum er með Völsungsblóð í æðum, dóttir Hákonar Hrafns Sigurðssonar og Þórhöllu Gunnarsdóttur.

Hópinn má sjá hér en þjálfari liðsins er Jörundur Áki sveinsson.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744