Arnar Pálmi valinn til æfinga með U19

Nýráðinn landsliðsþjálfari U19 í knattspyrnu, Ólafur Ingi Skúlason hefur valið fyrsta æfingahóp sinn sem kemur saman í lok næstu viku í Hafnarfirði.

Arnar Pálmi valinn til æfinga með U19
Íþróttir - - Lestrar 256

Arnar Pálmi Kristjánsson.
Arnar Pálmi Kristjánsson.

Nýráðinn landsliðsþjálfari U19 í knattspyrnu, Ólafur Ingi Skúlason hefur valið fyrsta æfingahóp sinn sem kemur saman í lok næstu viku í Hafnarfirði.

Þar eigum við Völsungar fulltrúa en Arnar Pálmi Kristjánsson er í hópnum.
 
Í tilkynningu frá Völsungi kemur fram að Arnar Pálmi hafi leikið lykilhlutverk í meistaraflokksliði Völsungs síðustu tvö ár þrátt fyrir ungan aldur.
 
Hann hefur leikið í stöðu vinstri bakvarðar og staðið sig frábærlega.
 
"Við óskum hinum stórefnilega Arnari Pálma góðs gengis á æfingunum og til hamingju með valið" segir jafnframt í tilkynningunni.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744