Arnar Guðmundsson nýr framleiðslustjóri Norðlenska á Akureyri

Arnar Guðmundsson kjötiðnaðarmeistari hefur verið ráðinn framleiðslustjóri starfsstöðvar Norðlenska á Akureyri.

Arnar Guðmundsson. Ljósmynd norðlenska.is
Arnar Guðmundsson. Ljósmynd norðlenska.is

Arnar Guðmundsson kjötiðnaðarmeistari hefur verið ráðinn framleiðslustjóri starfsstöðvar Norðlenska á Akureyri.

Arnar hefur starfað hjá Norðlenska með hléum frá 1981 en án hléa síðastliðin 20 ár eða frá 1999.

Hann starfaði sem verkstjóri á Húsavík til ársins 2017 þegar hann tók við starfi innkaupastjóra félagsins.

Á heimasíðu Norðlenska segir að Eggert H. Sigmundsson núverandi framleiðslustjóri láto af störfum í lok septermber og Arnar taki þá við keflinu.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744