Arnar Björnsson Þingeyingar maímánaðar

Þingeyingafélagið hefur valið Arnar Björnsson sem Þingeying maímánaðar.

Arnar Björnsson Þingeyingar maímánaðar
Fólk - - Lestrar 285

Arnar Björnsson Þingeyingar maímánaðar 2020.
Arnar Björnsson Þingeyingar maímánaðar 2020.

Þingeyingafélagið hefur valið Arnar Björnsson sem Þingeying maímánaðar.

"Ég er fæddur 22. maí 1958. Þetta kvöld var kvikmyndin “Fegursta kona heims” sýnd í Bæjarbíói. Í auglýsingu í Morgunblaðinu segir að Gina Lollohrigida leiki í myndinni og skýrt tekið fram að hún dansi og syngi sjálf. Ekki veit ég hvort foreldrar mínir, Björn Þorkelsson og Kristjana Þórhallsdóttir hafi reiknað með að þriðja barn þeirra yrði stúlka. Líklega hafa þau orðið fyrir vonbrigðum að fá ekki svo sem eina Gínu í staðinn fyrir grallarann sem síðar var skírður Arnar. 

Foreldrar mínir ákváðu að flytjast til Húsavíkur, faðir minn Grímseyingur en móðir Skagfirðingur. Heiðursfólk sem fóstruðu strákana sína vel. Það var gott að alast upp á Húsavík og þaðan á ég margar góðar minningar. Torgið var nafli alheimsins og það var býsna langt fyrir stutta fætur að fara yfir Búðarána hvað þá að bregða sér eitthvað lengra. Torgið hafði allt og þar ríkti hinn himneski friður. Sem unglingur fékkst ég við að stokka og beita en vann lengst í aðgerðinni hjá Alla Þorgríms og var í uppskipun hjá Skúla Jóns. Ég ber mikinn hlýhug til þessara heiðursmanna. Ég útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri 1979 og stundaði síðan nám í íslensku, bókmenntum og uppeldisfræði í Háskóla Íslands. Kenndi um tíma við Gagnfræðaskólann en 1979 fengum við þá flugu í höfuðið Kári Arnór Kárason og Jóhannes Sigurjónsson að gefa út blað sem fékk nafnið Víkurblaðið. Frá þeim tíma hef ég unnið við fjölmiðla, fyrst hjá Ríkisútvarpinu og frá 1997 hjá Stöð 2. Í lok mars á þessu ári var mér tilkynnt að starfskrafta minna væri ekki lengur óskað. Ég er því án atvinnu en glaður og kátur með lífið og tilveruna. Ég reikna með því að koma tvíefldur til leiks á vinnumarkaðnum í byrjun næsta árs, svo framarlega að einhver vilja nýta sér starfskrafta mína.

Kona mín er auðvitað húsvísk, Kristjana Helgadóttir eða Didda í Grafarbakka eins og hún var alltaf kölluð þegar hún bjó á Húsavík. Hún er dóttir heiðurshjónanna Helga Bjarnasonar og Jóhönnu Aðalsteinsdóttur. Samtals eigum við fjögur börn; Jóhönnu kennara, Unnar Friðrik kennara og endurskoðanda, Egil bókaútgefanda í Danmörku og Kristjönu íþróttafréttamann. Þetta er yndislegur hópur og ekki eru barnabörnin sjö og barnabarnið eftirbátar þeirra. Það sama á við um maka barnanna fjögurra. Það er því undan litlu að kvarta. Þrátt fyrir undarlega tíma er engin ástæða til annars en að vera bjartsýnn. 

Það hefur hingað til verið mitt motto að lifa lífinu lifandi. Við eigum að sýna öðrum auðmýkt og kurteisi og bera virðingu fyrir náunganum. Ég er ekki frá því að þeir sem það gera farnist betur ein hinum í lífinu". Segir Arnar Björnsson.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744