Árleg hátíđ í Íţróttahöllinni og Húsavíkurmótiđ í Boccia

Árleg hátíđ í Íţróttahöllinni og Húsavíkurmótiđ í Boccia Í dag, sunnudaginn 19. febrúar stóđ Bocciadeild Völsungs og Kiwanisklúbburinn Skjálfandi fyrir

Árleg hátíđ í Íţróttahöllinni og Húsavíkurmótiđ í Boccia
Almennt - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 388 - Athugasemdir (0)

Sigmar og Jóna Rún sigruđu Bocciamótiđ.
Sigmar og Jóna Rún sigruđu Bocciamótiđ.

Í dag, sunnudaginn 19. febrúar stóð Bocciadeild Völsungs og Kiwanisklúbburinn Skjálfandi fyrir uppákomu í Íþróttahöllinni, sem orðið er að árlegum viðburði.

Það er  “Opna Húsavíkurmótið í Boccia” og Kiwanismenn  veita Húsvísku íþróttafólki viður-kenningar fyrir afrakstur liðins árs og lýst er kjöri “Íþróttamanns Húsavíkur 2011”.  

 

Þetta var í 16 skipti sem Kiwanisklúbburinn heiðrar húsvískt íþróttafólk með þessum hætti, og 23. bocciamótið sem Boccadeild ÍFV og Skjálfandi halda frá upphafi eða frá stofnun  Bocciadeildarinnar 1990.

Opna Húsavíkurmótið í Boccia

Opna Húsavíkurmótið í Boccia er orðinn fastur liður í starfi Boccideildar Völsungs með góðum stuðningi Kiwanisklúbbsins, sem annast alla dómgæslu, merkingu valla, og kemur að öllum undirbúningi mótsins. Mótinu stýrðu Bragi Sigurðsson og Kristín Magnúsdóttir úr stjórn Bocciadeildar.

Mótið tókst í alla staði afar vel, met þátttaka eða í allt mættu til leiks 48 sveitir sem sýnir enn einu sinni að bæjarbúar og fyrirtæki eru tilbúin að styðja við bakið á Bocciadeildinni með  þátttöku, en þetta er fjáröflun fyrir deildina í formi firmakeppni.

Lena

Það var hart barist og hér það Lena Kristín sem á leik en Guðbjartur fylgist spenntur með. Ljósm. Halli Sig.

Úrslit:     

1. sæti  Sveit frá Tésm. Rein ehf, Jóna Rún og Sigmar Stefáns

2. sæti  Sveit frá Norðurþingi, Bocciakapparnir, Kristbjörn og Guðbjartur

3. sæti  Sveitin, Systkinin frá Lyngbrekku, Lena Kristín og Jón Aðalsteinn

Húsavíkurmeistararnir í Bocci 2011, Trésmiðjan Reinn ehf hlutu að launum glæsilegan farandbikar sem gefin var af Norðlenska ehf og var nú keppt um í fyrsta sinn.

Þá voru veitt sérstök verðlaun þeim fyrirtækjum  sem voru  “í flottasta búningunum”, “með flestu liðin“,  “yngstu og elstu keppaendurna” og það lið sem lengst væri að komið, en það var pólskt lið frá Norðlenska.

Mótið var afar skemmtilegt og tókst í alla staði mjög vel, mikil stemming  og spenna. og þurfti oft bráðabana til að útkljá leiki.

Verðlaun voru glæsileg, en þau voru gjafir frá eftirtöldum styrktaraðilum: Landsbankinn, Íslandsbanki, Háriðjan, Lyfja, , Víkurraf, Sparisjóðurinn og Innex.

Glæsilegt mót með um 100 keppendur og gesti í iþróttahöllinni þegar mest var nærri 200, frábær og skemmtilegur dagur

Íþróttamaður Húsavíkur 2011

Að loknu Bocciamóti hófst athöfn þar sem húsvískt íþróttafólk var heiðrað fyrir frammistöðu, ástundun og árangur á árinu 2011.  Nefnd á vegum Skjálfanda “ um val á Íþróttamanni Húsavíkur” annaðist afhendingu verðlauna, forseti Kiwanisklúbbsins Skjálfanda, Egill Olgeirsson ávarpaði viðstadda, íþróttafólk, forsvarsmenn íþróttafélaganna og aðra gesti.  Hann sagði m.a. frá undirbúningi og hvernig staðið er að vali íþróttafólks og kjöri “Íþróttamaður Húsavíkur” sagði hann m.a. að þetta væri í 16 skipti sem klúbburinn heiðrar afreksfólk í íþróttum og  veitti þeim viðurkenningar með þeirri aðferð sem hér væri viðhöfð.

Í allt voru veittar 18 viðurkenningar til íþróttafólks í tíu íþróttagreinum auk sérstakra verðlauna í formi ferðastyrks frá Kiwanisklúbbnum til eftirtalda einstaklinga sem urðu í þrem efstu sætum í vali á Íþróttamanni Húsavíkur 2011.

Í  3. sæti varð  Sigurður Unnar Hauksson, skotíþróttamaður  2. sæti varð,  Bjarki Þór Jónasson, knattspyrnumaður og  Íþróttamaður Húsavíkur 2011 varð Hafþór Mar Aðalgeirsson, knattspyrnumaður í Völsungi.

itrottamenn

Hafþór Mar Íþróttamaður Húsavíkur th., Bjarki Þór Jónasson sem varð annar í kjörinu og Unnur Sigurðardóttir sem tóv við verðlaunum sonar síns, Sigurðar Unnars Haukssonar, sem varð þriðji.

Einnig  var afhentur “Hvatningabikar ÍF” sem ung bocciakona Bryndís Benediktsdóttir frá Þverá í Öxarfirði hlaut að þessu sinni.

Bryndis

Bryndís Benedikstdóttir fékk Hvatningabikar Í.F. 

Þá afhenti Kiwanisklúbburinn Skjálfandi Fimleykadeild Völsungs kr. 75.000,- í styrk vegna ferðar deildarinnar næsta sumar í æfingarbúðir í Danmörku.

 Egill

Egill forseti Skjálfanda og Guðrún forðmaður Völsungs undirrita samninginn.

Að lokum undirrituðu formaður Völsungs, Guðrún Kristinsdóttir og forseti Skjálfanda, Egill Olgeirsson, samning er kveður á um að Kiwanisklúbburinn Skjálfandi verði aðal-styrktaraðili „Kiwanismótsins á Húsavík í knattspyrnu yngstu iðkenda“ sem haldið verði árlega í lok ágúst fyrir börn í 6. og 7. flokki . Samningurinn gildir a.m.k. næstu 5 ár og er heildarstyrkurinn að lágmarki ein milljón á tímabilinu.

Samningurinn tryggir til frambúðar að mótið verður haldið og verði áfram einn af föstum liðum í knattspyrnunni hjá Völsungi.

Segja má að dagurinn allur, Húsavikurmótið í Boccia, og kjör “Íþróttamanns Húsavíkur 2011”, svo og athöfnin öll hafi tekist vel.  verið hátíðleg, vel sótt af bæjarbúum, Bocciadeildinni og Kiwanisklúbbnum til sóma.

        

f.h. Bocciadeildar ÍFV/Kiwanisklúbbsins Skjálfanda 

Egill Olgeirsson.

Myndir frá verðlaunaafhendingunni er hægt að skoða hér

Halli Sig var með vélina á lofti og hér má skoða afrakstur hans og Sævars Guðbrands.

 

 

 


640.is   |   Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson   |   vefstjori@640.is   |   Sími: 895-6744