Anna Karólína Vilhjálmsdóttir sæmd gullmerki ÍSÍ

Anna Karólína Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi var í gær sæmd gullmerki ÍSÍ.

Anna Karólína Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi var í gær sæmd gullmerki ÍSÍ.

Athöfnin fór fram við 40 ára afmælishóf Íþróttasambands fatlaðra sem fram fór í Súlnasal á Radisson Blu Hótel Sögu.

Kristín Guðmundsdóttir formaður sundnefndar ÍF var við sama tækifæri sæmd gullmerki ÍSÍ en það var Sigríður Jónsdóttir varaforseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem nældi gullmerkinu í þær Kristínu og Önnu Karólínu.

Sigríði til fulltyngis var annar varaforseti ÍSÍ, Hafsteinn Pálsson en bæði voru þau fulltrúar ÍSÍ við afmælishófið.

Anna Karólína Vilhjálmsdóttir

Sigríður Jónsdóttir, Þórður Árni Hjaltested, Hafsteinn Pálsson, Anna Karólína Vilhjálmsdóttir og Kristín Guðmundsdóttir.

Ljósmynd ifsport.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744