lver Bakka aftur til skounarAlmennt - Hafr Hreiarsson - Lestrar 290 - Athugasemdir (0)
Álver á Bakka er aftur komið til skoðunar og hefur Landsvirkjun hafið viðræður við svissneskt fyrirtæki sem vill reisa 180 þúsund
tonna álver við Húsavík. Ráðamenn fyrirtækisins flugu til Norðurlands í gær á einkaþotu til að skoða
aðstæður.
Einkaþotan sem lenti á Akureyrarflugvelli um miðjan desember þótti til marks um áhuga þýskra aðila á að reisa kísilver við
Húsavík.
Einkaþotan sem lenti á Akureyri í gær, var hins vegar ennþá stærri og þegar menn sáu einkennisstafi þotunnar höfðu menn
á orði að sjálfur Mister Bigg væri mættur. Um borð var Gary Klesch, aðaleigandi og stjórnarformaður svissnesks fyrirtækis sem veltir 600
milljörðum króna og rekur meðal annars þrjú álver, tvö í Hollandi og eitt í Þýskalandi.
Klesch kom til Íslands ásamt einum forstjóra sinna til að kanna möguleika á að reisa 180 þúsund tonna álver, og ræddu þeir
á mánudag meðal annars við fulltrúa Landsvirkjunar, Landsnets og Skipulagsstofnunar, sem og við tvo ráðherra, og í gær funduðu þeir
með ráðamönnum á Húsavík.
Athyglisvert er að þeim skuli nú vísað á lóðina á Bakka, aðeins fjórum mánuðum eftir að slitið var
viðræðum um að Alcoa reisti þar álver.
Samkvæmt upplýsingum Stöðvar 2 er stutt síðan Klesch hóf könnunarviðræður við Landsvirkjun um kaup á 200 megavöttum raforku
og var niðurstaða Íslandsheimsóknar hans nú að þeim viðræðum skyldi haldið áfram. (visir.is)


640.is Facebook