Allt fór vel ţegar Haukur strandađi viđ LundeyAlmennt - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 407 - Athugasemdir (0)
Skonnortan Haukur sem strandaði við Lundey á Skjálfanda hálfellefuleytið í morgun losnaði af strandstað 55 mínútum síðar.
Um borð voru 32 farþegar og þriggja manna áhöfn. Farþegarnir voru ferjaðir í land á slöngubátunum Jóni Kjartanssyni frá björgunarsveitinni Garðari og Ömmu Siggu frá hvalskoðunarfyrirtækinu Gentle Giants. Engan þeirra sakaði.
Í viðtali við fréttastofu RÚV sagði Hörður Sigurbjarnarson stjórnarformaður Norðursiglingar enga hættu hafa verið á ferðum:
„Það sem gerðist var einfaldlega það að báturinn var þarna í fuglaskoðun og eðli málsins samkvæmt er þá farið mjög nálægt eyjunni, en þarna hafa orðið mistök, hann fór heldur nærri, eins og ljóst má vera. Hann strandaði norðan við eyjuna og sendi þá út eðlilegt neyðarkall, í gegnum strandgæsluna og björgunarsveitin er kölluð til. Og sömuleiðis okkar björgunarsveit, á vegum fyrirtækisins. Þannig að við fórum bara á vettvang, fólkið var flutt í land á vegum björgunarsveitarinnar. En við fórum þarna að á öðrum bát og settum taug á milli skipanna og frá því að strandið varð og þar til við drógum hann af strandsstað liðu nákvæmlega 55 mínútur.“
Að sögn Harðar er báturinn alveg óskemmdur.
„Enda voru aðstæður þannig að þær hefðu ekki getað verið betri, það var algjört logn og ládauður sjór þannig að það var engin hætta á ferðum nokkurn tímann. Þarna var virkað sem mögulegt er neyðar- og viðbragðskerfi landsins í gegnum björgunarsveitina og strandgæsluna.“
Hann segir að farþegunum hafi ekki verið mjög brugðið.
„Það er þannig í þessum ferðum að allir eru í flotbúningum og þetta gerðist mjög hægt, báturinn rann upp á grynningarnar á hægustu ferð og það tókst að halda fólkinu öllu rólegu enda augljóst öllum að það var engin hætta á ferðum.“ (ruv.is)
Á strandstað norðan við Lundey. Verið að ferja fólk um borð í Jón Kjartansson og Amma Sigga bíður átekta. Fiskibátar skammt undan.
Skonnortan Haukur kemur að bryggju en hann virtist óskemmdur eftir hremmingarnar.

















































640.is á Facebook