Aldrei meiri umferð um Víkurskarð - Umferðametið frá 2010 slegið

Umferðin yfir Víkurskarð reyndist 13,5% meiri í nýliðnum júlímánuði borin saman við sama mánuð á síðasta ári.

Umferðin yfir Víkurskarð reyndist 13,5% meiri í nýliðnum júlímánuði borin saman við sama mánuð á síðasta ári.

Umferðin frá áramótum hefur aukist um tæp 14%. Meðalumferð á sólarhring stefnir nú í 1800 ökt/sólarhr. fyrir árið 2017. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.

Nú gerðist það að í fyrsta sinn að umferðin fór yfir 5000 bíla markið og gerðist það í tvígang. Föstudaginn 21. júlí fór umferðin í 5.059 ökutæki og sunnudaginn 23. júlí fóru 5.034 ökutæki yfir skarðið. Gamla metið var frá árinu 2010 en 4.750 ökutæki fóru um Víkurskarðið sunnudagurinn 25. júlí það ár. Litlu munaði að það met félli í fyrra, en 24. júlí í fyrra fóru 4.526 ökutæki um skarðið.

Mjög gott verður var á Norðurlandi þessa helgi og fór hitinn í 24 gráður eða meira nokkra daga í röð, sem skýrir eflaust að hluta til þessa miklu umferð. (641.is)

Víkuskarð

Umferð um Víkurskarð


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744