01. sep
Aflétta lokun um Dettifossveg vestan Jökulsár að DettifossiAlmennt - - Lestrar 90
Ákveðið hefur verið að aflétta lokun um Dettifossveg vestan Jökulsár (nr. 862) frá þjóðvegi 1, norður að Dettifossi, frá og með morgundeginum.
Aðrar leiðir á svæðinu, þ.á.m. gönguleiðir, eru áfram lokaðar.
Ákvörðunin byggir á áhættuminnkandi aðgerðum almannavarna, auknu eftirliti af hálfu Vatnajökulsþjóðgarðs, minnkandi straumi gangandi ferðamanna, aukinni getu til eftirlits með mælingum auk viðbótarlöggæslu á svæðinu.
Áréttað er að ákvörðunin byggir ekki á minnkandi flóðahættu heldur aukinni eftirlitsgetu.
Ákvörðunin tekur gildi klukkan 8:00 í fyrramálið, 2. september
Aðgerðastjórn almannavarna Þingeyinga
Ríkislögreglustjórinn almannavarnadeild