Afhentu Styrktarfélagi HSN á Húsavík afrasktur nytjamarkaðar

Systurnar Helga Guðrún og Kristín Helgadætur afhentu í dag Styrktarfélagi HSN á Húsavík 600.000 krónur að gjöf.

Auður, Helga Guðrún og Kristín.
Auður, Helga Guðrún og Kristín.

Systurnar Helga Guðrún og Kristín Helgadætur afhentu í dag Styrktarfélagi HSN á Húsavík 600.000 krónur að gjöf.

Peningurinn er afrakstur nytjamarkaðar sem þær systur stóðu fyrir á Skarðaborg í Reykjahverfi í sumar.

Afhendingin fór fram í garðinum við Skarðarborg og að henni lokinni var boðið upp á kaffi og með því.

Auður Gunnarsdóttir formaður styrktarsfélagsins veitti gjöfinni viðtöku fyrir hönd félagsins en einnig voru viðstaddar Guðrún Guðbjartsdóttir gjaldkeri félagsins og Guðrún K. Aðalsteinsdóttir ritari þess.

 Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson

Auður Gunnarsdóttir, Helga Guðrún Helgadóttir, Kristín Helgadóttir, Guðrún Guðbjartsdóttir og Guðrún K. Aðalsteinsdóttir.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744