Aðgengi fyrir alla?Almennt - - Lestrar 310
Á heimasíðu Borgarhólsskóla segir frá því að undanfarin ár hafa nemendur í áttunda bekk skólans kannað aðgengi að stofnunum og fyrirtækjum bæjarins fyrir fólk sem er í hjólastól.
Nemendur fengu lánaða tvo hjólastóla í Hvammi og skiptast á að aka sjálfir og hver öðrum um miðbæ Húsavíkur.
"Það er óhætt að segja að víða sé pottur brotinn þegar kemur að aðgengi að þjónustu og verslun. Jafnframt í samgöngum utandyra varðandi niðurtekt á gangstéttum.
Hinsvegar er ánægjulegt að segja frá því að sumstaðar hefur aðgengi fyrir hjólastóla verið stórlega bætt og til fyrirmyndar, s.s. við Safnaðarheimilið í Bjarnahúsi og útibúum bæði Íslandsbanka & Landsbanka. Sumsstaðar komast einstaklingar í hjólastól ekki inn með neinu móti hvort sem er með aðstoð eða ekki" segir í í fréttinni.
Sjá fleiri myndir HÉR.