Aðgengi fyrir alla?

Á heimasíðu Borgarhólsskóla segirfrá því að undanfarin ár hafa nemendur í áttunda bekk skólans kannað aðgengi að stofnunum og fyrirtækjum bæjarins fyrir

Aðgengi fyrir alla?
Almennt - - Lestrar 310

Við kirkjuna þar sem aðgengi er ábótavant.
Við kirkjuna þar sem aðgengi er ábótavant.

Á heimasíðu Borgarhólsskóla segir frá því að undanfarin ár hafa nemendur í áttunda bekk skólans kannað aðgengi að stofnunum og fyrirtækjum bæjarins fyrir fólk sem er í hjólastól.

Nemendur fengu lánaða tvo hjólastóla í Hvammi og skiptast á að aka sjálfir og hver öðrum um miðbæ Húsavíkur.

"Það er óhætt að segja að víða sé pottur brotinn þegar kemur að aðgengi að þjónustu og verslun. Jafnframt í samgöngum utandyra varðandi niðurtekt á gangstéttum.

Hinsvegar er ánægjulegt að segja frá því að sumstaðar hefur aðgengi fyrir hjólastóla verið stórlega bætt og til fyrirmyndar, s.s. við Safnaðarheimilið í Bjarnahúsi og útibúum bæði Íslandsbanka & Landsbanka. Sumsstaðar komast einstaklingar í hjólastól ekki inn með neinu móti hvort sem er með aðstoð eða ekki" segir í í fréttinni.

Sjá fleiri myndir HÉR.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744