Framsýn - 88 á atvinnuleysisskrá í lok árs 2017

Þrátt fyrir að atvinnuástand hafi verið einkar gott að undanförnu í sögulegu samhengi þá er það yfirleitt ekki svo að ekki séu til skráningar á

Þrátt fyrir að atvinnuástand hafi verið einkar gott að undanförnu í sögulegu samhengi þá er það yfirleitt ekki svo að ekki séu til skráningar á atvinnuleysisskrá.

Á heimasíðu Framsýnar kemur fram að á starfssvæði Framsýnar, Þingiðnar, Starfsmannafélags Húsavíkur auk Verkalýðsfélags Þórshafnar voru 88 skráðir atvinnulausir í lok árs 2017.

Þar af voru 34 í Langanesbyggð, 35 í Norðurþingi og tíu í Skútustaðahreppi. Þá hafði fjögað um 20 manns á skránni síðan í nóvember þegar 68 voru skráðir á þessu sama svæði.

Að meðaltali voru 63 einstaklingar á skrá á þessu svæði árið 2017. Það voru því greinilega fleiri á skrá um áramót en til gengur og gerist yfir árið. Til dæmis voru 41 á atvinnuleysisskrá í ágúst.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744