22. feb
3,7 jarðskjálfti á Öxarfirði í morgunAlmennt - - Lestrar 312
Skjálfti af stærð 3,7 varð úti á Öxarfirði um hálfáttaleytið í morgun um 15 km vestsuðvestur af Kópaskeri. Hafa minni skjálftar orðið í kjölfarið að því er fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofunni.
Í frétt á mbl.is segir að skjálftinn fannst í Skíðadal, nærri Dalvík, í um 90 km fjarlægð frá upptökunum.
Líkt og hrinan sem staðið hefur yfir við Grímsey, er skjálftavirknin í Öxarfirði er á Grímseyjarbeltinu.